UMSÓKN UM VINNUSTOFU KORPÚLFSSTÖÐUM.

Vinnustofur Textílfélagsins á Korpúlfsstöðum eru til leigu frá 1.mars n.k.
Sjá nánar myndir: http://www.facebook.com/album.php?aid=2014312&l=3b249&id=1043983928
Umsóknum skal senda til stjórnar formadur@tex.is, fyrir 20.febrúar.

Textílfélagið leigir af Sjónlistarmiðstöð um 250 fm á Korpúlfsstöðum. Þar eru vinnustofur (samtals um 140 fm) hitt eru sameiginleg rými (verkstæði): stór salur (verkstæði) með stóru og minna þrykkborði, votrýmum m. vöskum, strauvélum, “dömpurum” og vinnuborðum, “eldhússvæði” og grófvinnu votrými. 
Þeir sem leigja vinnustofur munu hafa aðgang að verkstæði.
Aðgangur að verkstæðunum eingöngu - eru til leigu á dagstaxta.

Til útleigu eru:
VINNUHERBERGI: ca. 20 fm. á aðalhæð, 4 herbergi. Veggir, læst hurð, opið upp úr, mikil birta og lofthæð. Hægt að leigja einn eða t.d. tveir saman.
VINNUHERBERGI: ca. 60 fm. á 2.hæð. Uppgangur úr sameiginlegu aðalrými. Læst hurð. Góð birta, undir súð að hluta. Heppilegt fyrir 4-6 saman (10-15 fm á mann).

SKÁPAR. Fyrir dót, verð 3.000 kr.á mánuði, innifalið er 1 vinnudagur á sameiginlegu verkstæð á mánuði.

Verð:
Vinnuherbergi: 800 kr.fm.
Dagstaxti verkstæði: 3.000 kr. fyrir félagsmenn.
Skápur: 3.000 á mánuði – innifalið er 1 dagur á verkstæði.
Samningur er gerður milli leigjanda og fulltrúa stjórnar. Útleiga á vinnustofum er að lágmarki 6 mánuðir. Uppsagnarfrestur er 3 mánuðir, nema að leigjandi finni annan í sinn stað í samráði við stjórn.
Uppsögn sendist skriflega eða rafrænt.
Leigan greiðist fyrirfram, þann 1. hvers mánaðar og leggist inn á reikning Textílfélagsins:
Banki 0111    HB:  26    Reikningur nr: 77977    Kt: 580380-0189.   Skýring: Leiga vinnstofur Korpu

 

Nafn:
Heimilisfang:
Símar:
Netfang:

Vinnuherbergi, staðsetning og fjöldi fm:
Skápur:
Verkstæði (skrifið mánaðardaga sem óskað er eftir):