FORSÍÐA / FRÉTTIR
02.02.2110
Þjóðararfur og hönnun
WORLD OF FOLK - fyrirlestur með Rögnu Fróða um hugmyndafræði Li Edelkoort.
Ragna Fróðadóttir, hönnuður og listrænn stjórnandi hjá Edelkoort inc. mun halda fyrirlestur í Norræna húsinu 11. febrúar n.k. kl. 14.00.
Um er að ræða svokallað trend forecast sem fyrirtækið Edelkoort er heimsþekkt fyrir.
Í fyrirlestri sínum mun Ragna leggja áherslu á áhrif þjóðarmenningar á strauma og stefnur í hönnun.
Ragna Fróðadóttir nam textíl- og tískuhönnun í París og Reykjavík. Eftir að hafa haldið úti eigin fatahönnunarmerki, Path of Love, í um áratug flutti hún til New York og hóf störf hjá alþjóðlega fyrirtækinu Edelkoort inc. Ragna Fróðadóttir tók þátt í Norræna tískutvíæringnum 2011 í Seattle. |

Nánari upplýsingar: nh@nordice.is
http://ragnafroda.com/
http://www.edelkoort.com/
http://www.nordicfashionbiennale.com/nfb |
Lengd: 90 mínútur. Miðaverð: 2000 kr.
29.1.2012
Adobe Photoshop - Myndvinnsla
Adobe Illustrator - Munsturgerð
Textílverkstæðið Korpa
Byrjendur - Kennari Kristveig Halldórsdóttir
NÁMSKEIÐ I
Adobe Photoshop - Myndvinnsla
Laugardainn 11. febrúar kl. 10.oo-17.oo
NÁMSKEIÐ II
Adobe Illustrator - Mynsturgerð
Laugardaginn 25.febrúar kl. 10.oo-17.oo
Fjölti: 6-8 þátttakendur á námskeið
Verð 15.000-
Skráning: kristveig@islandia.is
18.2.2012
Námskeið
Spunanámskeið
Spunanámskeið verður haldið í febrúar, í litlu rauðu húsi við Dyngjuna er boðið upp á að spinna sinn lífsþráð úr reyfi frá kind nágrannans við kertaljós á köldum vetrarkvöldum. Kennt verður að spinna þráð frá reifi, kemba með handkömbum og spunnið á snældu og síðan á rokk. Lummur og ketilkaffi á heitri kamínu.
Dyngjan-listhús er við fjallsrætur Kerlingar í landi Fífilbrekku, Eyjafjarðarsveit. Upplýsingar í síma 899 8770 og hadda@simnet.is.
Tilkynningar
Aðalfundur Textílfélagsins
Fimmtudag 1.mars verður aðalfundur Textílfélagsins haldin á Café Loka.
Félagið býður upp á léttan kvöldverð.
Dagskrá auglýst síðar.
Aðalfundur NTA - Nordic Textile Art (www.nordictextileart.net)
Stjórn NTA heimsækir okkur 21.-26.mars. Sunnudaginn 25.mars verður haldinn aðalfundur NTA og er opinn félagskonum Textílfélagsins. Hefst hann 17.30 á Textílverkstæði Korpu.
Drög að dagskrá:
17.30 - aðalfundur og umræður um samstarf
18.00 - fordrykkur
18.45 - kvöldverður
19.30 - Kristín Gunnlaugsdóttir heldur fyrirlestur um feril og verk
|