ELDRI FRÉTTIR
29.11.2011
1. des opnun á Korpúlfsstöðum frá kl. 17-22. Félagskonur eru hvattar til að kynna og selja vörur sínar.
Hafið samband við Helenu eða Þóru Björk: thorab@atlantik.is og helenasolbra@helenasolbra.is

5.10.2011
Sýningaropnun - Bókverkaféalgið ARKIRNAR opnar í sýningarsal Íslenskrar grafíkur, Tryggvagötu 17, hafnarmegin. Meðal sýnenda eru Arnþrúður Ösp Karlsdóttir, Helga Pálína Brynjólfsdóttir og Ingiríður Óðinsdóttir úr Textílfélaginu.
Verið velkomin á opnunina fimmtudaginn 27. október frá kl. 17 - 19.

10.10.2011
Laust vinnustofurými á Textílverkstæðinu Korpu.
20 fm eru lausir til útleigu á loftinu. Aðgangur að verkstæðinu.
Áhugasamir hafi samband við anna@fakta.is eða helenasolbra@helenasolbra.is
6.10.2011
Bryndís Bolladóttir textílhönnuður ásamt 6 öðrum listakonum opnar nýja verslun - stúdíó NETAGERÐINA.
Verið velkomnar fimmtud. 6. okt. kl. 17-19

3.10.2011

17.9.2011
30.6.2011

13.6.2011
VIGGA

Sýning Jónu Sigríðar Jónsdóttur
Byggðasafninu Skógum, gamla skólahúsinu frá Litla-Hvammi
17. júní til 1. júlí 2011.
Verið velkomin á opnun sýningarinnar 17. júní kl. 15.
Sýningin verður opin á opnunartíma safnsins kl. 9.00–18.00.
27.5.2011
Fundargerð aðalfundar Textílfélagsins á Akureyri 14.maí 2011 má nálgast hér.
Verið velkomin á opnun nýs Gallerís að Korpúlstöðum
milli kl. 18 og 20 á föstudaginn 27. maí.
Opnunartímar Gallerísins verða frá fimmtudegi til sunnudags frá kl. 14 til 18.
Grafarvogsdagurinn er á laugardagninn 28. maí og mikið um að vera þar þann dag.

27.5.2011

20.5.2011
Aðalfundur Textílfélagsins var haldinn laugardinn 13.maí á Akureyri. Dagskrá helgarinnar var frábær, sýningarstaðir skoðaðir, og vinnustofur textíllistakvenna. Mótttökur voru frábærar og stemning stórkostleg. Myndir og fundargerð aðalfundar verður birt mjög fljótlega.

Þann 7. maí opnar Listasafnið á Akureyri sérstaklega spennandi sýningu sem er yfirlitssýning á verkum Kristínar Gunnlaugsdóttur. Undanfarið hefur Kristín leitað nýrra leiða til að opna myndheim sinn og í myndlist hennar hafa orðið róttækar breytingar. Hún hefur lagt olíumálverkið á hilluna, í bili að minnsta kosti, og snúið sér að útsaum á striga.
10.4.2011
Aðalfund Textílfélagsins er fyrirhugað að halda á Akureyri helgina 12.-14.maí. Á dagskrá er að skoða sýningarsali vegna félagssýningarinnar, heimsækja vinnustofur listakvenna, workshop og fleira skemmtilegt. Vinsamlega meldið þátttöku til AsdisBirgis@simnet.is.
31.3.2011
Listasalur Mosfellsbæjar
Auður Vésteinsdóttir
VIÐMIÐ
1. apríl 2011 – 30. apríl 2011

Föstudaginn 1. apríl kl. 16 - 18 verður opnuð sýning myndlistarmannsins Auðar Vésteinsdóttur, VIÐMIÐ, í Listasal Mosfellsbæjar. Á sýningunni eru ný collageverk. Með land- og sjókortum sem leiðarstef að myndefni verkanna lýsir Auður margbreytilegum formum sem hverfult veðurfar varpar á land og sjó.
Sýningin er opin virka daga kl. 12 – 18 og laugardaga 12 – 15
Allir velkomnir - aðgangur ókeypis
Viðmið - Handan við tölur og línur land- og sjókorta er áhugaverður heimur sem vert er að skoða. Að nota mið og finna rétta stefnu er aðeins hluti af því að lesa í landið. Ferðalagið sjálft, um landið hulið snjó þar sem veður og vindar geta breytt ásýnd þess á örskotsstund, vekur löngun til að fanga augnablikið og festa í minni.
Hægt er að skoða sjókort eins og myndverk. Þau sýna landslagið á botninum en kraftmikil hreyfing hafsins dregur hugann að ótal blæbrigðum og birtingarmyndum þess.
Á sýningunni eru collageverk þar sem unnið er með kort og margvíslegan handunninn pappír í bland við örþunnt efni.
22.3.2011

Textílfélagið í Epal á HönnunarMars 2011
MYNSTURMERGÐ
Hönnuðir Textílfélagsins sýna efni, gluggatjöld, púða, teppi, mottur, lampa og hljóðdempun. Hér tengist hönnun og iðnaður á Íslandi í prjóni, þæfingu, þrykki, vefnaði og útskurði sem birtist í mynsturmergð í ólíku hráefni.
Textílhönnuðir verða á staðnum meðan á sýningunni stendur, opnun föstudaginn 25. mars kl. 11:30
Aðalbjörg Erlendsdóttir, Anna Guðmundsdóttir, Anna Gunnarsdóttir, Bjargey Ingólfsdóttir, Bryndís Bolladóttir, Brynja Emilsdóttir, Guðlaug Halldórsdóttir, Helena Sólbrá Kristinsdóttir, Helga Pálína Brynjólfsdóttir, Hrönn Vilhelmsdóttir, Ingibjörg Styrgerður Haraldsdóttir, Rósa Helgadóttir, Sigríður Ólafsdóttir, Sigríður Elfa Sigurðardóttir, Þóra Björk Schram og Þórey Eyþórsdóttir.
Aðrir viðburðir í fata og textílhönnun smellið hér.
10.3.2011
Sýning Textílfélagsins á Akureyri á Listasumri 2. - 7. júlí 2011
Sýningarnefnd hefur sent frá sér upplýsingar um væntanlega sýningu. Sjá hér pdf skjal.
Þátttöku skal tilkynna fyrir 5.apríl á netföngin: anna.design@nett.is og ragga@vma.is
29.1.2011
Hrafnhildur Arnardóttir hlýtur norrænu textílverðlaunin
Hrafnhildur Arnardóttir, einnig þekkt sem Shoplifter, hlaut norrænu textílverðlaunin í ár. Verðlaunin verða afhent í Borås, Svíþjóð, 10. nóvember en þá opnar einnig sýning með verkum Hrafnhildar í textílsafninu í Borås.
Hrafnhildur hefur verið afkastamikil í list sinni á undanförnum árum og sýnt verk sín víða um heim, m.a. í hinu virta safni Museum of Modern Art í New York.
Hrafnhildur verður meðsýningu í Hönnunarsafni Íslands á HönnunarMars sem fram fer 24. - 27. mars nk.

7.1.2011
Textílfélagið hlaut styrk af fjárlögum 2011
vegna pappírsgerðarverkstæðis á Textílverkstæðinu Korpu.
Upphæð 1 millj. kr.
Til hamingju með það félagskonur !
1.12.2010
JÓLAGLEÐI
Við ætlum að boða jólagleði fyrir félagskonur á Textílverkstæðinu Korpu fimmtudaginn 9.des. kl.20.30.
Rauðvín og piparkökur í boði félagsins.... gaman væri ef félagskonur kæmu með eitthvað gómsætt til að narta í og deila með á sameiginlegt hátíðarborð...
KORPART
Svo minnum við á opið hús KorpArt n.k. laugardag þann 4.desember... fjöldi gesta kemur þennan dag og tilvalið tækifæri til að kynna sig og verkstæðið...
KorpArt hópurinn á Sjónlistamiðstöðinni á Korpúlfsstöðum mun halda desemberhátíð með ýmsum uppákomum laugardaginn 4. desember frá kl. 13.00 til 17.00.
Á dagskrá verður:
Opnar vinnustofur listamanna.
Samsýningin "Koma Tímar..." í stóra sal Korpúlfsstaða.
Kl. 13.30 Les Arnfríður Guðmundsdóttir, guðfræðiprófessor upp úr bókinni "Út í birtuna", sem er eftir Arnfríði og Æju myndlistarkonu.
Kl. 14.00 Dúó Ásgeirs Ásgeirsson, gítar og Hauks Gröndals, saxófón, en þeir spila í einn til tvo tíma.
Kl. 16.00 Hljómsveitin " 3 raddir og Beatur "
Einkasýning í miðrými hússins "Náðinni" Edda Þórey Kristfinnsdóttir.
Einkasýning í kjallara "Gryfjunni" Kristín María Ingimarsdóttir.
Rósukaffi opið með ilmandi kaffi, kakó og nýju bakkelsi á hóflegu verði.
Gestum gefst tækifæri á að rölta á milli staða í húsinu, skoða húsið og spjalla við listamennina og hönnuðina um verk þeirra, en mikil fjölbreytni er þar ríkjandi,
s.s. málverk, leirlist, grafík, textíll, hreyfimyndir, grafísk hönnun og landslagsarkitektúr.
26.11.2010
´´LJÓS´´
Anna Gunnarsdóttir opnar sýninguna, ´LJÓS´ hjá Fríðu skartgripahönnuði, Strandgötu 43, Hafnarfirði,
laugardaginn 27 nóv kl 14.
Verkin eru unnin úr þæfðri ull, silki, hör og fiskroði.
Þetta eru ljós sem unnin eru með kuðungaformið í huga.
Ljósin geta verið hangandi, á borði eða á vegg.
12.11.2010
Brynja Emilsdóttir sýnir hönnun í versluninni Aurum.
Brynja Emilsdóttir, textíl- og fatahönnuður, sýnir í nóvember lampakúpla handunna úr tvinna í versluninni Aurum í Bankastræti. Brynja hefur um árabil unnið föt, mynstur og nytjahluti úr tvinnaflækjum en hefur að undanförnu unnið úr þeim kúlur sem sem hún svo gerir úr lampakúpla. Allt að 2.000 metrar af tvinna fara í hvern lampa en þræðina vinnur hún í marglitar flækjur sem gefa töfrandi litbrigði og mynda hálfgagnsætt efni sem gefur frá sér hlýlegt og fallegt ljós. Kúplarnir eru af ýmsum stærðum og í ýmsum litum og má bæði nota sem lampa á fæti og sem loftljós.
Brynja útskrifaðist frá textíldeild Listaháskólans árið 2000 og lagði síðar stund á nám í fatahönnun fyrir iðnframleiðslu við Guerrero skólann í Barcelona á Spáni. Hún hefur síðan unnið að fata- og textílhönnun auk þess sem hún kennir við Myndlistarskóla Reykjavíkur.
Brynja notaði fyrst tvinna í verk sín fyrir um tíu árum, þá sem þrykkmynstur, en hóf síðar að gera efni úr tvinnaflækjunum sem hún hefur notað m.a. í fatnað, brúðarkjóla, diskamottur og skartgripi auk ljósanna sem hún sýnir nú.
Útstillingar með ljósunum verða í Aurum, Bankastræti 4, allan nóvember en hönnun eftir Brynju má einnig finna í verslununum Kraum, Kokku, Hraunhúsum og í Hrím á Akureyri. Sjá nánar umfjöllun hjá Hönnunarmiðstöð og Pressunni.
3.11.2010
Prjón frá Hjaltlandseyjum
fyrirlestur og workshop
Textílverkstæðið Korpa sunnudaginn 21.nóvember og mánudaginn 22.nóvember.
Fyrirlestur 21.nóv. kl. 20.oo:
Shetland Knitwear –
History and Tradition
Hjaltland á sér langa textílsögu. Við fylgjum sögu prjónless frá elstu fundum, gegnum munstrin; gegnum prjónuð brúksföt og gegnum verslunarvöruna þangað til versksmiðjuspunnið og litað band tók yfir.
Verð 1.000- kr. Skráning og nánari upplýsingar hér. |
Námskeið 22.nóv. kl.17.3o-22.oo:
Knitting workshop
Prjónahefðir Hjaltlendinga með áherslu á gerð sjala. Hjaltlenskt prjónanámskeið gefur þér tækifæri til að auka færni þína. Gerðar verða prufur af blúnduprjóni fyrir sjöl til að kanna litablöndur, snið og frágang og við prufum prjónabeltið.
Verð 5.000- kr. Skráning og nánari upplýsingar hér. |
|
3.11.2010
Félagsfundur Textílfélagsins
Félagsfundur verður haldinn á Textílverkstæðinu Korpu þriðjudaginn 9.nóv. kl. 20.00.
Á dagskrá verður umræða og kynning um fyrirhugaða textílsýningu á Akureyri 2011, Hönnunarmars 2011 og myndasýning Hrafnhildar Sigurðardóttur og Ásdísar Birgisdóttir frá nýlegri heimsókn á textílsvæðið í nágrenni Borås og Gautaborgar. Kaffiveitingar og önnur mál.
Hér er að finna tengil á Rydboholms þrykkverksmiðjuna í nágrenni Borås.
Pdf: Snabbguide-information
Pdf: Välkomnnen in í fabrikken
2.11.2010
KorpArt
Verið velkomin á opnar stofur listamanna á Korpúlfsstöðum laugardaginn 6.nóv. frá kl. 13 -17.
Félagskonur eru hvattar til að nýta sér þann mikla fjölda gesta sem heimsækir Korpúlfsstaði fyrsta laugardag í mánuði með því að hafa sýningu og/eða sölu á verkum sínum á Textílverkstæðinu Korpu þennan dag. Minnum á að fyrstu helgina í desember er einnig mikil aðsókn og frábær stemning !
26.10.2010
Hönnunarmars 2011
Á HönnunarMars fundi fimmtudaginn 14. október sl. voru gerð drög að félagssýningu Textílfélagsins.
Viðburður:
HönnunarMars 24. - 27. mars 2011
Þema:
Mynsturgerð. Hönnun og tækni er í víðasta skilningi fráls; allt frá hefðbundnu þrykki, þæfingu, vefnaði, prjóni, útsaumi til nýjustu tækni í framleiðslu efna.
Efni:
Frjálst; ull, bómull, silki, hör, pappír.......gler, vír, gerviefni.
Staðsetning:
Epal, Skeifunni. Verslunin hefur áhuga á að sýna íslenskan textíl og hefur sýnt íslenska hönnun á HönnunarMarsinum.
Markmið:
Að vekja athygli á starfi textílhönnuða og möguleikum á nýju verkstæði Textílfélagsins á Korpúlfsstöðum. Sýna fjölbreyttni innan félagsins með afmörkuðu verkefni.
Formsatriði:
Þátttökugjald kr. 10.000. Skráningu þátttöku lýkur 15. nóvember. Verða reglulegir fundir verkefnisstjóra í Hönnunarmiðstöðinni fylgt eftir á fundum með þátttakendum. Lokaður póstlisti þátttakenda með upplýsingum varðandi verkefnið.
Verkefnisstjóri: Björg Pjetursdóttir
Verkefnið er í þróun og í höndum þátttakenda.
25.10.2010
Adobe Illustrator – Mynsturgerð
Textílverkstæðið Korpa
Námskeið I
Föstudaginn 5. nóvember kl: 10:00 – 16:00.
Námskeið II
Föstudaginn 12. nóvember kl: 10:00 – 16:00.
Námskeið III
Laugardaginn 13. nóvember kl: 10:00 – 16:00.
Kennari: Kristveig Halldórsdóttir, myndlistarmaður og kennari
Fjöldi: 6‐8 þátttakendur
Kennslu.st: 8
Verð: 14.000.‐
Þið lærið:
• Grunnatriðin í Adobe Illustrator.
• Að hana mynstur út frá formfræðinni.
• Að búa til mismunandi mynstureiningar.
• Breyta ljósmyndum í vector línur og gera mynstur út frá þeim.
Takið með: Takið með fartölvu, ég er með tölvur fyrir þá sem eru ekki með
fartölvur. Forrit: Adobe Illustraitor – hægt að nota forritið frítt í 30 daga ef þið
eigið ekki forritið. http://www.adobe.com/downloads/
Skráning: Sendið e‐mail á; kristveig@islandia.is fyrir 3. nóvember
Við skráningu þarf að staðfesta námskeiðið með því að borga. Ég sendi ykkur
upplýsingar um reikninginn við skráningu.
Verð með heitt á könnunni og te fyrir þá sem vilja.
Gott að taka með nesti fyrir hádegismat.
kristveig@islandia.is
29.9.2010
DAGUR MYNDLISTAR

KorpArt hópurinn á Sjónlistamiðstöðinni á Korpúlfsstöðum í Grafarvogi mun opna vinnustofur sínar laugardaginn 2.október frá kl. 13.00 til 17.00.
Gestum gefst tækifæri á að spjalla við listamennina og hönnuðina um verk þeirra, en mikil fjölbreytni er þar ríkjandi, s.s. málverk, leirlist, textíll, hreyfimyndir, grafísk hönnun og landslagsarkitektúr. Kaffi og meðlæti verður til sölu í Rósukaffi á hóflegu verði. Í vetur verða opin hús fyrsta laugardag í mánuði að janúar undanskildum, eins og undanfarin ár, með breytilegum sýningum og uppákomum.
Allir eru velkomnir.
bara DESIGN, Bjargey Ingólfsdóttir, hefur opna vinnustofu Garðatorgi 3, (göngugatan, verður opin frá kl 11-16, laugardeginum 2. október.
Sýning, VATNS-LEIÐSLA í Listasal Garðabæjar, fyrir ofan Bókasafnið á Garðatorgi 7.
Sýningin er opin frá kl 13-17 alla daga nema mánudaga og lýkur þann 10. október
“Svartfugl og Hvítspói” Brekkugötu 3a , Akureyri, verður opin frá kl 13 – 17.
Anna Gunnarsdóttir textil og Sveinbjörg Hallgrímsdóttir grafík.
12.9.2010
PHOTOSHOP
Hvar?:
Námskeiðið er haldið á Textílverkstæðinu Korpu á Korpúlfsstöðum
Hvenær?:
Námskeið I - Laugardagurinn 18. september kl: 10:00 – 17:00.
Námskeið II - Laugardagurinn 25. september kl: 10:00 – 17:00.
Kennari: Kristveig Halldórsdóttir, myndlistarmaður og kennari
Fjöldi: 8 - 10 þátttakendur
Kennslu.st: 9
Verð: 10.000.-
Þið lærið að:
Stærðir stafrænna mynda
Skeyta saman myndum.
Hanna borða í photoshop t.d. fyrir vefsíður
Sérverkefni eftir áhuga hvers og eins.
Takið með: Takið með fartölvu, minnisbók, myndavél. Ljósmyndir sem þið eigið og viljið
vinna með Ég er með tölvur fyrir þá sem eru ekki með fartölvur.
Forrit: Adobe Photoshop– hægt að nota forritið frítt í 30 daga ef þið eigið ekki
forritið. http://www.adobe.com/downloads/
Skráning: Sendið e-mail á; kristveig@islandia.is fyrir 15. september.
Við skráningu sendi ég upplýsingar um greiðslu og ýtarlegri upplýsingar um
námskeiðið. Innifalið í verðinu eru kennsluleiðbeiningar – hefti.
Verð með heitt á könnunni og te fyrir þá sem vilja.
Gott að taka með nesti fyrir hádegismat.
VECTOR - TEIKNINGAR OG MUNSTURGERÐ
Hvar?:
Námskeiðið er haldið á Textílverkstæðinu Korpu á Korpúlfsstöðum
Hvenær?:
Námskeið I - Föstudaginn 10. september kl: 10:00 – 17:00. (nokkur sæti laus)
Námskeið II - Laugardagurinn 11. september kl: 10:00 – 17:00.
Námskeið III - Föstudaginn 17. september kl: 10:00 – 17:00.
Kennari: Kristveig Halldórsdóttir, myndlistarmaður og kennari
Fjöldi: 8 - 10 þátttakendur
Kennslu.st: 9
Verð: 10.000.-
Þið lærið að:
Teikna í vector forriti, Adope Illustrator.
Hanna munstur út frá formfræðinni.
Hanna ykkar eigin munstur.
Breyta ljósmyndum í vector línur og gera munstur út frá þeim.
Takið með: Takið með fartölvu, minnisbók, myndavél. Ljósmyndir sem þið eigið og viljið nota í
munsturgerðina. Ég er með tölvur fyrir þá sem eru ekki með fartölvur.
Forrit: Adobe Illustraitor – hægt að nota forritið frítt í 30 daga ef þið eigið ekki forritið.
http://www.adobe.com/downloads/
Skráning: Sendið e-mail á; kristveig@islandia.is fyrir 8 sept / 15 sept.
Við skráningu sendi ég upplýsingar um greiðslu og ýtarlegri upplýsingar um
námskeiðið. Innifalið í verðinu eru kennsluleiðbeiningar – hefti.
Verð með heitt á könnunni og te fyrir þá sem vilja.
Gott að taka með nesti fyrir hádegismat.
Textíltríenall í Lodz Póllandi
Textílfélagið tilnefndi tvær listakonur til að vera fulltrúar okkar í textíltríenalinum, Ingibjörgu Styrgerði og Kristveigu Halldórsdóttur. Hér fyglir tengill á umfjöllun og myndir frá sýningunni.
http://monicaogrodowski.wordpress.com/2010/05/23/presence-accompanying-exhibition-to-the-tapestry-triennial/
14.6.2010
Landfuglar

Sýning Sæunnar Þorsteinsdóttur, Landfuglar, opnar í Listmunahorni Árbæjarsafns laugardaginn 19. júní kl. 14.
Sæunn finnur gömlum íslenskum landshlutakortum nýtt hlutverk með því að brjóta þau saman í origami fugla sem hún þræðir upp á vír ásamt alls kyns steinum, perlum og skrauti. Hólar, hraun og mýrar teygja fram hálsinn og þungt farg fjallanna fær vængi til að fljúga. Landfuglarnir svífa með hraunvængi, fosshálsa og móastél.
Sýningin stendur frá 14.júní – 2.júlí og er opin alla daga kl.10-17.
Allir velkomnir.
27.5.2010
Kúlan bregður á leik
Verið velkomin á nýja sýningu í myndlistarsýningaröð í verslun og veitingastofu Þjóðmenningarhússins. Að þessu sinni sýnir Bryndís Bolladóttir, textílhönnuður, nýjustu hönnun sína; kúluna.
Kúlan er unnin úr þæfðri íslenskri ull. Hún bregður sér í ólík hlutverk, s.s. snaga, leikfangs, hitaplatta, skrauts, kolls og hljóðdempunarverks.
Bryndís er stúdent af listnámsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti og útskrifaðist úr textíldeild Listaháskóla Íslands árið 1999. Hún hefur einnig sótt námskeið við Konstfack listaháskólann í Svíþjóð.
Sjá nánari upplýsingar um verk Bryndísar á vef hennar: www.bryndisbolladottir.com
3.5.2010
Aðalfundur Textílfélags Íslands
föstudaginn 7.maí kl.19.oo, Café Loka.
Léttur kvöldverður, kaffi og eftirréttur í boði Textílfélagsins.
Léttvín á kostnaðarverði.
Dagskrá aðalfundar.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Gestur kvöldins:
Halla Helgadóttir framkv.stjóri Hönnunarmiðstöðvar kynnir HönnunarMars og starfsemi Hönnunarmiðstöðvar (kl.ca.21.oo).
Önnur mál.
Vinsamlega sendið meldingu á formann, textilsetur@simnet.is,
vegna kvöldverðarins.
28.4.2010
Korpúlfsstaðir – opið hús & Verkstæði Textílfélagsins er 1. árs...
Það verður opið hús á Korpúlfsstöðum laugardaginn 1. maí og í stóra salnum verða 35 listamenn með verk á stærstu samsýningunni til þessa, undir þemanu Birta. (aðeins opin þennan eina dag). Opið frá kl. 13 til 17.
Kl. 13:00 Dúettinn „UNO“ verður með latino prógram, söngur og píanó.
Kl. 14:00 Rithöfundurinn Einar Már Guðmundsson verður með upplestur.
Kl. 14:30 Harmonikkuleikur Hinna Tígulegu Dragspilsdrottninga
Kl. 15:00 Vox feminae kvennakórinn mun syngja undir stjórn Margrétar Pálmadóttur.
Kl. 16.00 SalsaIceland með dansatriði.
Rósukaffi er opið -kaffi, kakó og nýbakað bakkelsi á hóflegu verði.
Verkstæði Textílfélagsins er 1. árs þennan dag. Margt verður um manninn í húsinu og við hvetjum félagskonur til að nota tækifærið og koma með verk sín til að sýna og selja á verkstæðinu. Verðið er 2.500 kr. og beðið er um að búið sé að setja upp fyrir kl. 12.
Léttvín og annað fljótandi verður á boðstólnum fyrir félagskonur og velunnara milli kl. 15 og 17, hittumst og lyftum glasi fyrir verkstæðinu og þeim áfanga sem náðst hefur.
20.3.2010
Bókverkasýning Norræna húsinu, síðasta sýningarhelgi.
16.3.2010
HönnunarMars 18. - 21. mars
Opnun HönnunarMarsins í Hafnarhúsinu annað kvöld kl. 18, sjá viðhengi.
Bæklingurinn er kominn út og er hægt að nálgast hann á öllum viðburðum, kaffihúsum og hjá Björgu.
Opnunin okkar verður kl. 14 - 15 á undan spennandi fyrirlestri (ekki kl. 13)
Föstudaginn 19 mars:
Kl. 14 - 15 Kaffitár í boði Textílfélagins - opnun á Þjóðminjasafni Íslands, nytjahlutir og götumál
Kl. 15 - 16:30 Fyrirlestur um hugmyndahönnun á vegum Gagarín í Þjóðminjasafninu
Kl. 16 - 18 Bryndís Bolladóttir með opnun hjá Sævari Karli Bankastræti, léttar veitingar
Kl. 17 - 19 Guðrún Hadda Bjarnadóttir og Anna Sigríður Hróðmarsdóttir með opnun á Artótekinu, Borgarbókasafninu.
Kl. 18 - 20 Bjargey Ingólfsdóttir sýnir á Fiskmarkaðinum.
Borðað saman á Fiskmarkaði eða á Tapasbarnum
Síðan verður nóg að gera bæði fyrir og eftir þessa viðburði og um að gera að skoða dagskránna á síðu Hönnunarmiðstöðvarinnar:
Dagskrá HönnunarMars

Rabarbari
Textíllistakonan Guðrún Hadda Bjarnadóttir og leirlistakonan Anna Sigríður Hróðmarsdóttir opna sýninguna Rabarbari föstudaginn 19. mars kl. 17.00 í Artóteki á 1. hæð Borgarbókasafns Reykjavíkur, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15.
Anna Sigríður og Hadda hafa nokkrum sinnum sýnt saman og hefur þema sýninganna þá gjarnan verið matartengt s.s. bláskel, kjötsúpa, sushi, jólagrauturinn.
Sýningin sem nú opnar í Artótekinu er hins vegar helguð hinni kröftugu plöntu rabarbaranum.
6.3.2010
Hrafnhildur Sigurðardóttir textílmyndlistarmaður
var kjörin formaður SÍM.
Afar óvænt og spennandi úrslit - sjá nánar www.sim.is
28.2.2010
Textílþrykk !!
Námskeið í textílþrykki, yfirborðsskreytingu á fatnað/textíl,
hjáTextílverkstæðinu Korpu
Kynnist nokkrum af möguleikum textílþrykks og lærið skemmtilega og einfalda tækni
til að umbreyta eldri fatnaði/textíl og glæða hann nýju lífi.
Það er einnig hægt að gera myndverk, púða, dúka, trefla, slæður, gardínur og fl.
Aðferðir sem hægt er að vinna áfram með heima.
Leiðbeinendur:
Sigrún Lára Shanko og Sigríður Ólafsdóttir textíllistakonur.
Námskeiðið er tvö skipti 5 tímar í senn
annaðhvort kl: 10:00 – 15:00 eða 17:00 –22:00. Verð: 15.000 kr.
Framhaldsnámskeiði. Verð: 10.000 kr.
Upplýsingar og skráning í síma í síma: 8983337 og 8959165 eða
með tölvupósti á korpatex@gmail.com
Eftirfarandi námskeið eru í boði:
Námskeið 1 (grunnnámskeið) 01. mars – 02. mars Kl: 17:00 – 22:00
Námskeið 2 (grunnnámskeið) 04. mars – 05. mars Kl: 10:00 – 15:00
Námskeið 3 (framhaldsnámskeið) 08. mars – 09. mars Kl: 17:00 – 22:00
Námskeið 4 (grunnnámskeið) 11. mars – 12. mars Kl: 10:00 – 15:00
Námskeið 5 (framhaldsnámskeið) 15. mars – 16. mars Kl: 17:00 – 22:00
Námskeið 6 (grunnnámskeið) 18. mars – 19. mars Kl: 10:00 – 15:00
ATH! Með fyrirvara um minnst sex og hámark fjórtán þáttakendur á hverju námskeiði.
15.2.2010
Hrafnhildur Sigurðardóttir félagskona Textílfélagsins býður sig fram til formanns SÍM.
Félagsfundur textílfélagsins og jafnframt framboðsfundur Hrafnhildar verður haldinn þriðjudaginn 23. febrúar kl. 20.oo á Korpúlfsstöðum.
Hrafnhildur heldur framboðserindi og spyr þeirrar spurningar sem fram kemur í kynningu á heimasíðu sinni, facebook og á heimasíðu SÍM -
,,Hvaða mál brenna á ykkur"?
Sjá nánar um framboð Hrafnhildar á eftirtöldum netsíðum og á Facebook:
http://www.hsig.net
http://www.hrafnhildursig.blog.is
http://www.sim.is
http://www.neslist.is
Hrafnhildur hvetur jafnframt allar félagskonur til að gerast stuðningsaðili framboðsins á Facebook:
http://www.facebook.com/profile.php?ref=profile&id=627693993#!/group.php?gid=497101710432
HVATNING FRÁ FÉLAGSKONU:
Kæru textílkonur, nú þurfum við allar sem ein að standa saman og fylkja okkur um Hrafnhildi og kjósa hana til formans. Hún hefur alla burði til að takast á við þetta verkefni bæði sem einstaklingur og myndlistarmaður eins og dæmin sanna.
Kveðja
Þorbjörg Þórðardóttir
9.2.2010
S V Í F A N D I
Sýningunni aflýst
Frá sýningarnefnd:
það hefur verið tekin ákvörðun með að hætta við sýninguna "Svífandi" sem átti að eiga sér stað á Korpúlfsstöðum 6-21 mars.
Skráning á sýninguna "Svífandi" gekk því miður ekki eftir þar sem aðeins 16 meðlimir félagsins hafa staðfest þáttöku sína en framlengdur þátttökufrestur rann út á laugardaginn 6. febrúar.
3.2.2010
Skráningarfrestur framlengdur
Skráningarfrestur á sýninguna SVÍFANDI, verður framlengdur til 6. feb kl: 12:00
Námskeið í febrúar og mars
í notkun stafrænna myndavéla og myndvinnslu
Hvar? Námskeiðið er haldið á Textílverkstæðinu Korpu á Korpúlfsstöðum.
Hvenær? Föstudaginn 12. febrúar kl. 13:00 – 17:00 og laugardaginn 13. febrúar kl: 9:00 – 16:00.
Sama námskeið verður líka haldið föstud. 12. mars – laugard 13. mars.
Kennari: Kristveig Halldórsdóttir, myndlistarmaður og kennari.
Fjöldi: 8 þátttakendur
Kl.st: 10
Verð: 14.000.-
Þið lærið að: Stilla myndavélina.
Yfirfæra myndir á tölvu.
Flokka myndir.
Allt um stærð mynda og skjala.
Undirbúa myndir fyrir prentun.
Breyta myndum í tölvu.
Takið með: Takið með fartölvu ef þeir getið, myndavél og leiðbeiningabók með myndavélinni ykkar ef þið eigið hana. Ég er með tölvur fyrir þá sem eru ekki með fartölvur. Komið með stílabók-glósubók.
Forrit: Adobe Bridge og Photoshop
Skráning: hjá Kristveigu – kristveig@islandia.is fyrir 10. febrúar á fyrra námskeiðið og fyrir 10. mars á seinna námskeiðið. Við skráningu sendi ég ykkur upplýsingar um banka til að leggja inn á. Lágmarksfjöldi er 5 nemendur.
Verið velkomin á opið hús á Korpúlfsstöðum
Minni á opna húsið á laugardaginn n.k. á textílverkstæðinu Korpu. Ef einhver vill nýta sér það og koma sér á framfæri
með því að leigja aðstöðu hjá textílverkstæðinu þá vinsamlegast hafið samband sem fyrst við einhverja neðangreinda.
Aðeins er hægt að stilla upp verkum á laugardagsmorgun frá kl. 11 og kostar kr. 2500,-
Hlökkum til að heyra frá ykkur
Textílverkstæðið Korpa
KorpArt-hópurinn á Sjónlistamiðstöðinni á Korpúlfsstöðum, opnar vinnustofur sínar laugardaginn 6.febrúar frá kl.13.00-17.00. Þá gefst gestum tækifæri á að kynnast ólíkum verkum listamanna og hönnuða. Fjölbreytni verkanna, sem eru til sýnis og sölu er mikil, svo sem málverk, leirlist, textíll, fatnaður, hreyfimyndir, grafísk hönnun og landslagsarkitektúr.
Rósu kaffi er opið þar sem hægt er að versla kaffi, kakó og nýbakað bakkelsi á hóflegu verði.
Í vetur er opið hús á Korpúlfsstöðum fyrsta laugardag í mánuði, með breytilegum sýningum. Nánari upplýsingar um listamenn og hönnuði má sjá á vefsíðunni: http://www.korpart.is
2.2.2010
Á morgun, 3. febrúar, rennur út frestur til að skrá þátttöku í hönnunarsýningunni, Vendum okkar kvæði í kross, á Kaffitár á Þjóðminjasafni Íslands. Sýningin er viðburður Textílfélagsins á HönnunarMarsi Hönnunarmiðstöðvarinnar, 18. - 21. mars nk., og stendur hönnuðum til boða að nýta kaffihúsið og veggpláss á jarðhæð.
Á sama tíma verður örsýning á hulsum utan um heit götumál Kaffitárs og hvet ég alla félaga Textílfélagsins að taka þátt í sýningu sem gæti orðið ímyndunaraflinu að bráð!
Þátttökugjald vegna sýningarinnar Vendum okkar kvæði í kross er kr. 5000.- en ef eingöngu er tekið þátt í örsýningunni er gjaldið kr. 2.500.-
Fleiri viðburðir einstaka textílhönnuða eru einnig á dagskrá og hvet ég ykkur til að taka þátt með einum eða öðrum hætti.
Skráning:
Greiðsla lögð á bankareikning Textílfélagsins og tilkynning um greiðslu á neðangreint netfang:
Banki: 0101-26-067977
kt: 580380-0189
bjorg.pje@gmail.com
28.1.2010
Vendum okkar kvæði í kross
Textílfélaginu stendur til boða að sýna hönnun okkar á Kaffitár, kaffihúsi Þjóðminjasafns Íslands á HönnunarMarsinum, 18. – 21. mars 2010.
Sjá nánar um tilhögun sýningarinnar hér.

Á laugardaginn 30. janúar kl. 15.00 opnar sýning á útsaumsverkum Guðrúnar Guðmundsdóttur sem unnin eru m.a. upp úr handritum og helgimyndum,
en sú sýning
verður höfð að leiðarljósi við hugmyndavinnu fyrir sýningu Textílsfélagsins. Félagskonur eru eindregið hvattar til að skoða þessa afar forvitnilegu og fallegu sýningu, fá hughrif og innblástur.
Þá eru einnig á Þjóðminjasafninu sýning á útsaumsverkum frá
17.öld úr fórum safnsins.
Sýningarnar standa frá 30. jan - 25. apríl.
Þá viljum við minna á erindi 2ja textíllistakvenna Textílfélagsins á dagskrá Þjóðminjasafns Íslands í mars.
Sjá nánar um HönnunarMars: http://www.honnunarmidstod.is/HonnunarMars2010/
21.1.2010
Námskeið á Textílverkstæðinu Korpu
Rósaleppaprjón og textílþrykk
Rósaleppaprjón er gömul íslensk aðferð í myndprjóni sem gekk í endurnýjun lífdaga þegar bók Hélène Magnússon „Rósaleppaprjón í nýju ljósi“, kom út árið 2005.
Kennari er Hélène Magnússon.
Laugardaginn
30. janúar frá kl. 13-17.
Textílverkstæðið Korpa, Korpúlfsstöðum.
Verð 9.500- |
Þátttakendur á námskeiðinu læra tæknina, prjóna litla rósaleppa, fræðast um söguna og fá að hitta og handleika flíkurnar í bókinni. Garn í prufur er innifalið en komið með prjóna nr. 4.
Skráning með tölvupósti á knitting@knittingiceland.com. |
Textílþrykk !!
Námskeið í textílþrykki, yfirborðsskreytingu á fatnað/textíl, hjáTextílverkstæðinu Korpu
Kynnist nokkrum af möguleikum textílþrykks og lærið skemmtilega og einfalda tækni til að umbreyta eldri fatnaði/textíl og glæða hann nýju lífi.
Það er einnig hægt að gera myndverk, púða, dúka, trefla, slæður, gardínur og fl.
Aðferðir sem hægt er að vinna áfram með heima.
Leiðbeinendur: Sigrún Lára Shanko og Sigríður Ólafsdóttir textíllistakonur.
Námskeiðið er tvö skipti 5 tímar í senn annað hvort kl: 10:00 – 15:00 eða 17:00 – 22:00.
Verð: 15.000 kr.
Framhaldsnámskeið í boði. Verð: 10.000 kr.
Upplýsingar og skráning í síma í síma: 898-3337 og 895-9165 eða með tölvupósti á korpatex@gmail.com.
Eftirfarandi námskeið eru í boði:
Námskeið 1. (grunnnámskeið) 26. Jan. – 27. Jan. Kl: 17:00 – 22:00
Námskeið 2. (grunnnámskeið) 28. Jan. – 29. Jan. Kl: 10:00 – 15:00
Námskeið 3. (framhaldsnámskeið) 01. Feb. – 02. Feb. Kl: 17:00 – 22:00 Námskeið 4. (grunnnámskeið) 03. Feb. – 04. Feb. Kl: 10:00 – 15:00
Námskeið 5. (framhaldsnámskeið) 08. Feb. – 09. Feb. Kl: 17:00 – 22:00
ATH! Með fyrirvara um minnst sex og hámark fjórtán þáttakendur á hverju námskeiði. |
|
20.1.2010
S V Í F A N D I
SÝNING TEXTÍLFÉLAGSINS Á KORPÚLFSSTÖÐUM
6. – 21. MARS 2010
Sýningarnefnd félagsins hefur verið að störfum, en unnið er að skipulagi félagssýningarinnar sem verður 6. - 12. mars á Korpúlfsstöðum.
Allar félagskonur geta tekið þátt í sýningunni og vonumst við til að sem flestar verði með svo að 760 fm sýningarplássið verði sem glæsilegast.
Þeir sem vilja vera með þurfa að skrá sig fyrir 3. febrúar.
Sjá skráningarblað og nánari upplýsingar hér.
Sýningin opnar 6. mars en þá verður líka opið hús á Korpúlfsstöðum og í lok sýningarinnar dagana 18. - 21. mars verður sýningin tengd Hönnunarmarsinum en Textílfélagið mun einnig sýna í Kaffitár, Þjóðminjasafninu þá daga.
Kæru félagskonur þá er bara að svífa á þetta verkefni......
Kær kveðja sýningarnefndin.
14.1.2010
Anna Gunnarsdóttir
Chakra
09.01.10 - 05.02.10
Café Karólína // Kaupvangsstræti 23 // IS 600 Akureyri // 4612755
---
Anna Gunnarsdóttir opnar sýninguna “Chakra“
á Café Karólínu laugardaginn 9. janúar klukkan 15.
Chakra er úr Sanskrít og þýðir hringur eða hringrás og táknar orkustöðvar líkamans. Verkin eru sjö og eru þau unnin út frá litum og formum orkustöðvanna. Þau eru vafin með þráðum og formuð eftir alda gamalli tækni og sum þeirra lýsa í myrkri.
Anna stundaði nám við Verkmenntaskólann á Akureyri auk þess hefur hún sótt fjölda námskeiða í Danmörk, Englandi og fleiri löndum. Hún vinnur verk sín í ull, silki, leður og fiskiskinn. Anna starfrækir vinnustofu sína og sýningaraðstöðu, Svartfugl og Hvítspóa, í miðbæ Akureyrar. Anna er félagi í Textílfélaginu, Myndlistarfélaginu og Sambandi íslenskra myndlistarmanna. Hún á að baki fjölda einkasýninga og samsýninga heima og erlendis auk þess hefur hún fengið viðurkenningar fyrir verk sín.
Árið 2008 var Anna valin bæjarlistamaður Akureyrar.
Nánari upplýsingar veitir Anna í síma 897 6064 eða tölvupósti : anna.design@nett.is
Sýningin stendur til föstudagsins 5. febrúar og allir eru velkomnir.
23.11.09
Korpart - laugardag 5.des.
Korpart listamenn eru með opið hús laugardaginn 5. desember frá kl: 13:00 - 17:00.
Textílverkstæðið Korpa mun hafa opið og vera með korpukríli og furðudýr til sölu, ágóðinn mun renna til verkstæðisins.
Þær félagskonur sem vilja koma og stilla upp sínum vörum / verkum eru beðnar að gera það fyrir kl: 12:00 svo að allt sé tilbúið þegar húsið verður opnað.
Við munum vera til staðar frá kl: 10:00 um morguninn fyrir þá sem vilja byrja tímarlega.
Búast má við fjölda gesta og vonandi mun heimssókn Innlits-Útlits hafa einhver áhrif.
Viljum við biðja félagskonur að borga 2500.- fyrir aðstöðuna.
 
f.h. Korpunefndar, Kristveig.
linkur:
http://www.facebook.com/pages/Reykjavik-Iceland/Textilverkstaedid-KORPA/97743707357
HEIÐURSMERKI FÁLKAORÐUNNAR
Við óskum Hólmfríði Árnadóttur, heiðursfélaga Textílfélagsins innilega til hamingju.
en Hólmfríður var sæmd heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á árinu 2009 á 17. júní í sumar.
Hólmfríður Árnadóttir fyrrverandi prófessor, Reykjavík,
riddarakross fyrir framlag til listgreinakennslu í íslensku skólakerfi.
18.11.09
Textílfélagið og verkstæðið Korpa
Umfjöllun á Skjáeinum í Innlit Útlit.
http://skjarinn.is/einn/veftivi/innlit_utlit/1093/#tab=nyjustu-thaettir
6.11.09
Korpa
Opið hús laugardaginn 7. nóvember frá kl: 13:00 - 17:00
Vinsamlegast látið vini og vandamenn vita, margt skemmtilegt að skoða hjá listammönnunum og hönnuðunum.
Saumakvöld fimmtudag 5. nóv. kl.20.oo.
Við höfum nú hist þrisvar sinnum og skemmt okkur konunglega við að sauma þessi furðudýr til styrktar Textílverkstæðinu Korpu.
Þessi furðudýr verða svo seld á opnum degi í desember eins og áður hefur komið fram og munu þessar fínu fígúrur eiga eftir að gleðja einhverja um jólin.
Allir velkomnir hvort sem er til að segja sögur, hella upp
á kaffi, koma með e...fni eða sauma á fullu. Afraskturinn sem kominn er
lofar mjög góðu og spennandi verður að sjá hvað okkur tekst að gera
margar furðuverur.
Sjáumst hressar vonandi sem flestar.
Kær kveðja Kristveig, Þóra Björk, Sigrún og Sigríður.
13.09.09
Þorbjörg Þórðardóttir og Þórður Hall sýna í Norræna húsinu
Nú stendur yfir sýning í Norræna húsinu á verkum Þorbjargar Þórðardóttur og Þórðar Hall, sýningin samanstendur af listvefnaði eftir Þorbjörgu og málverkum eftir Þórð.
Sýningin er í samvinnu við Norræna húsið og er opin daglega frá kl. 12 – 17
og lýkur sunnudaginn 25. október 2009.
Aðgangur er ókeypis, lokað er á mánudögum.
 
08.09.09
Menningarferð um NV land 16. - 18. október.
Vaknað hefur sú hugmynd að fara hópferð, skoða sýningar og njóta samvista við hvor aðrar.
Gisting í sumarhúsum á bökkum Blöndu, heitir pottar og notalegheit.
Textílsýningar á NV landi eru þrjár:
Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi: Hring eftir hring.
Selasetrið á Hvammstanga: Hrafnhildur Sigurðardóttir
Gamla Kaupfélagið Skagaströnd: Þverskuður 2.
Dagskrá:
keyrt norður föstudag.
Laugardag; Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi, og Þverskuður 2 á Skagaströnd, Sjávarleður á Sauðárkróki.
Sunnudag: mini-smiðja með leður og roð í Textílsetrinu, Kvennaskólanum. Ekið suður og komið við í Selasetrinu.
Meldingar til Kristveigar, Hrafnhildar eða Ásdísar.
kristveig@islandia.is, admin@neslist.is eða textilsetur@simnet.is
Sýningaropnun

Gallerí Snærós á Stöðvarfirði,
laugardaginn 3. okt. kl. 17
06.09.09
Komdu og skoðaðu í kistuna mína....

Markmiðið er búa til ýmislegt úr afgöngum, t.d. dúkkur, kodda, bangsa, furðurdýr og annað, sem verður síðan til sölu í byrjun desember og ágóðinn rennur til Textílverkstæðis Korpu. Gaman væri að sjá sem flesta, framhald verður síðan eftir mánuð, fimmtudaginn 5. nóvember kl: 20:00.
30.09.09
FRÉTTATILKYNNING

Heidi heldur sig við efnið
16 textilverk frá árunum 2008 til 2009
á sýningu í Tjarnarsal Ráðhússins í Reykjavík
dagana 3. til 18. október 2009
á sama tíma og Ráðhúsið er opið
30.09.09
Fréttir
- stjórn og stýningarnefnd
- opið hús og sýningar
Fáeinar breytingar hafa í stjórn og nefndum Textílfélagsins frá aðalfundi í vor.
Stjórnarfundur var haldinn í lok vel heppnaðrar heimsóknar bresku nefndarinnar og stjórn, sýningarnefnd og Korpunefnd ræddu ýmis mál sem þurfti að taka ákvarðanir um.
Stjórn: Lind Völundardóttir sem kosin var á aðalfundi varð að segja fljótlega af sér vegna breyttra aðstæðna. Brynja Emilsdóttir hefur gefið kost á sér til að starfa með stjórn fram að næsta aðalfundi þar sem hún mun vonandi gefa kost á sér aftur og vera réttkjörin til stjórnarsetu. :)
Sýningarnefnd: frá aðalfundi hafa orðið þær breytingar að Guðlaug Halldórsdóttir, Bryndís Bolladóttir, Björg Pjetursdóttir og Heidi Strand óska eftir lausn frá nefndarstarfinu en Anna Guðmundsdóttir, Sigrún Shanko, og Þóra Björk Schram hafa gefið kost á sér til starfa. Því tekur við störfum ný sýningarnefnd og þó hún sé ekki réttkjörin á aðalfundi þá þiggjum við með þökkum að þær vilji taka að sér að starfa fram að næsta aðalfundi.
Sýningin "rauður eða svífandi" sem átti að vera í nóvember hefur verið frestað. Hugmyndin er að halda félagsýninguna þess í stað í mars 2010. Sýningarnefndin á eftir að kynna það nánar.
Opið hús er í Korpúlfsstöðum fyrsta laugardag mánaðarinns og hefur Textílfélagið glæsilegt húsnæði til að kynna list og hönnun Textílfélagsins. Ykkur er öllum heimilt að koma með vörur og kynningarefni og taka þátt í stemmningunni með þeim sem eru með vinnustofur á Korpu... en það eru rúmlega 50 aðrir listamenn í húsinu og hafa opin hús á laugardögum verið fjörugir og skemmtilegir viðburðir.
Gestirnir hafa mikinn áhuga á allri list og eru ólmir að fá að kynnast listamönnum og jafnvel að versla við þá !!! Síðasta opnunardag bar á því að fólk vildi versla textíl eins og það gerði á opnunardaginn í maí en þar seldum við fyrir um 100 þús. !
Opið hús á Korpu: 3. okt. - 7. nóv. - 5. des. milli kl. 13.oo og 17.oo.
Laugardaginn 5. des. verður sýning hjá KorpuArt hópnum í stóra sýningarsalnum. (KorpaArt: listamennirnir sem eru með vinnustofur á Korpu).
Hugmynd hefur kviknað um að hafa glæsilega textílsölusýningu á Korpuverkstæðinu þennan sama dag........það á eftir að útfæra þessa hugmynd og verður hún kynnt betur síðar.....
15.09.09
Kæru félagar
Okkur hefur hlotnast sá heiður að taka (aftur !) á móti fulltrúum virtra erlendra safna á Korpuverkstæðinu.
Barst okkur ósk um að hafa móttöku fyrir fulltrúa opinberra og einkarekinna listasafna í Bretlandi n.k. miðvikudag 17.sept. kl. 17 - 18. Eru félagskonur hvattar til að koma, sýna sig og verkin sín og njóta léttra veitinga.
Korpunefndin hvetur allar til að koma og setja upp verk til að gefa sem faglegasta mynd af því starfi sem unnið er í textíllistum hér á landi.
Nánari upplýsingar hjá Kristveigu: 699-0700
30.08.09
Kæru félagar
25 fm. vinnurými er til leigu á Textílverkstæðinu Korpu, Korpúlfsstöðum, frá 1. september 2009.
Vinnustofan er sjarmerandi og samtals 50fm rishæð. Nú þegar deila þrír aðilar saman húsnæðinu. Húsaleigan er ca. 20.000 kr. á mánuði.
Nánari upplýsingar veitir Kristveig, Þóra, Sigríður og Sigrún, sjá símanúmer hér að neðan.
Bestu kveðjur
Textílverkstæðið Korpa
Textílfélagið
korpatex@gmail.com
Korpustjórn:
Sigrún: 895 9165, Kristveig: 6990700,
Sigríður: 898 3337,Þóra Björk: 822 7510
30.08.09
Sýningaropnunin í Nes listamiðstöðinni á Skagaströnd hefur verið frestað um einn dag,
opnun á sunnudaginn 6. sept kl. 15.
Við hvetjum ykkur til að fjölmenna eins og ykkur er einum lagið á Skagaströnd og fá hvítvín eða kaffi í boði Textílfélagsins.
28.08.09
Kæru Textíllistakonur og hönnuðir,
Við viljum minna á sýninguna í Nes listamiðstöðinni á Skagaströnd, opnun laugardaginn 5. september kl. 15.
Hrafnhildur býðst til að ferja verkin norður nk. mánudag og tekur Steinunn Björg við þeim um helgina á neðangreint heimilisfang. Annars höfum við einnig tækifæri til að taka verk með okkur í lok næstu viku. Sýningin stendur til 27. sept.
Steinunn Björg
Laugarnesvegur 45
hs: 5534498
gsm: 8467523
Vinnurými til leigu
25 fm. vinnurými er til leigu á Textílverkstæðinu Korpu, Korpúlfsstöðum, frá 1. september 2009.
Vinnustofan er samtals 50 fm ris hæð og n egar deila rr ailar saman hsninu. Húsaleigan er ca. 20.000 kr. á mánuði.
korpatex@gmail.com
Korpustjórn:
Sigrún: 895 9165, Kristveig: 699 0700,
Sigríður: 898 3337,Þóra Börk: 822 7510
12.08.09
Félagskvöld – Komdu og skoðaðu í kistuna mína.
(Fimmtudagana 8. október og 5. nóvember kl: 20:00 , 2009)
Félagskonur koma með ýmiss konar efni, garn, gömul föt, sokka, tölur og fleira, vinna saman tvö kvöld að því að búa til tuskudúkkur, töskur, furðudýr og annað skemmtilegt sem síðan verður selt á jólamarkaði Korpu 5. desember til styrktar Textílverkstæði Korpu.
Ef vel til tekst getur þetta orðið árleg uppákoma þar sem félagskonur vinna saman, skemmta sér og kynnast hvor annarri. Allir hvattir til að mæta og sýna hinum hvað þeir geyma í kistunni sinni.
(Takið með saumavélar, skæri og annað sem til þarf.)
Nefnd Textílverkstæðis Korpu.
Dagskrá Textílverkstæðisins Korpu á haustönn 2009 (sjá nánar)
Opið hús verður á laugardögum frá 13 – 17 sem hér segir:
5. september
3. október
7. nóvember
5. desember
Félagsmenn geta byrjað að panta sér vinnudaga með því að senda e-mail á korpatex@gmail.com
sjá verðskrá. ( verð fyrir vefstól óákv)
Verð fyrir aðra en félagsmenn er helmingi hærra fyrir leigu á vinnustöðvum.
29.05.09
Sýningaropnanir
Ólöf Einarsdóttir Sigrún Einarsdóttir
ÍSLAND UM HÁLSINN
Hálsmen úr gleri, grjóti og þráðum

Árbæjarsafn – Listmunahorn
1.- 18. Júní 2009
Velkomin á opnun 1. Júní kl 14:00 – 17:00
"Hring eftir hring"

Verið velkomin á sumarsýningu Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi mánudaginn 1.júní kl. 14.00.
Sýning stendur frá 1.júní - 31. ágúst og er opin alla daga frá kl. 10 - 17.
Sýnendur eru Helga Pálína Brynjólfsdóttir, Kristveig Halldórsdóttir og Rosa E. Helgadóttir.
Sýningin er samvinnuverkefni Heimilisiðnaðarsafnsins og Handverks og hönnunar.
www.handverkoghonnun.i - www.simnet.is/textile
10.05.09
Aðalfundur
Aðalfundur Textílfélagsins er boðaður miðvikudaginn 27. maí kl. 20.oo á Textílverkstæðinu Korpu.

Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf:
1. Skýrsla stjórnar
2. Ársreikningar
3. Skýrsla nefnda; Sýningarnefnd og Korpunefnd
4. Tillaga um breytingar á félagslögum
5. Stjórnarkjör.
6. Önnur mál
.
Fundargestir eru hvattir til að koma með léttar veitingar
á sameiginlegt hlaðborð.
stjórnin.
28.04.09
Korpúlfsstaðir
Dagur myndlistar 2.maí

Textílverkstæðið Korpa, Korpúlfsstöðum, verður formlega opnað á “Degi myndlistar” laugardaginn 2. maí.
Vinnustofur verða opnar milli kl. 13.oo og 17.oo og félagskonur kynna nýjar vinnustofur.
Leiðsögn um verkstæðið kl. 13.30 og 15.30.
Textílfélagið hefur tekið á leigu stórt og glæsilegt rými í fyrrum mjólkurbúi á Korpúlfsstöðum.
Rýmið er hátt til lofts og vítt til veggja, gamlir bitar og súlur og mikil birta gerir þetta rými einstaklega fallegt og nýtilegt. Unnið hefur verið hörðum höndum síðasta mánuð að því að aðlaga rýmið þeirri starfsemi sem lýtur að þörfum félagsmanna.
Sameiginlegt vinnurými með þrykkborðum, vefstól(um), aðstöðu til litunar og blöndunar, blautrými til að þæfa og vinna í pappírsgerð ásamt þvotta og þurrkunaraðstöðu. Einnig verður bókahorn, fundaraðstaða og vinnustofur til útleigu. Alls munu 10 textílkonur vera með vinnuaðstöðu á svæðinu.
Markmið Textílfélagsins með Textílverkstæðinu Korpu er að efla textílmenntun. Samstarf verður við menntastofnanir um að halda námskeið, kynningar, fyrirlestra og sýningar og verður verkstæðið vettvangur þar sem hægt er að leita til fagmanna á sviði textíls til eflingar textíllistum og textílhönnun í landinu.
Nýting Textílverkstæðis Korpu:
· Námskeið á vegum Textílfélagsins
· Fyrirlestrar og fræðsla á vegum Textílfélagsins
· Leiga á aðstöðu til stofnana, einstaklinga eða hópa til lengri eða skemmri tíma.
Sölusýning á verkum félagskvenna til fjáröflunar Textílfélaginu verður á “Degi myndlistar” 2. maí milli kl. 13 og 17.
Textíllistaverk af mjög fjölbreyttum toga: Verðbil: 2.500 – 5.000 – 7.500 – 10.000 – 15.000 kr.
Verið velkomin !
myndir frá vinnudögum: http://www.facebook.com/album.php?aid=2020052&id=1043983928&l=53cf041194
21.03.09
Korpúlfsstaðir
félagsfundur - verkstæði - vinnudagar - innréttingar - tæki og tól
Kæru félagskonur,
Nú stendur til að setja verkstæði Textílfélagsins upp með aðstoð Friðriks smiðs en undirbúningur er á lokastigi. Uppsetning innréttinga, færa skilrúm, þrífa, mála og fleira er á dagskrá. Pípulagnir og rafmagn sér SÍM um að klára áður en við tökum höndum saman og gerum verkstæðið að veruleika.
Eins og fram hefur komið hefur félaginu borist margt sem nýtist á verkstæðinu en enn vantar uppá og auglýsum við hér eftir tækjum og tólum :
stórum vaski, blöndunartækjum, 2 krönum, ísskáp, dampi, leirtaui, bölum, skálum, dollum, pottum, vogum, kústum, moppum, tuskum, viftum, vatnsslöngum og öllu sem gæti nýst á verkstæðinu.
Félagsfundur er boðaður föstudaginn 3. apríl kl. 20-22.
Áhersla verður lögð á að ganga frá skipulagi og reglum verkstæðisins í notkun, útleigu osfv. Eru félagsmenn hvattir til að mæta enda mikilvægt að sem flestir komi að mótun þess.
Dagana 2. 3. og 4. apríl eru skipulagðir vinnudagar á Korpúlfsstöðum
og vill undirbúningsnefnd verkstæðisins hvetja félagskonur til að mæta með tuskur, verkfæri eða málningarrúllur. Það er allra hagur að hjálpast að og spara smiðnum handtökin, fleiri hendur vinna létt verk.
Við mætum:
fimmtudaginn 2. apríl kl. 16-22
föstudaginn 3. apríl kl. 16-19, félagsfundur í framhaldinu 20-22,
laugardaginn 4. apríl 9-14.
Með kveðju og von um góða mætingu.
Undirbúningsnefnd.
21.03.09
SÝNINGAROPNUN
Anna Gunnarsdóttir opnar sýninguna MIKADO á Bókasafni Háskólans á Akureyri, laugardaginn 21. mars kl: 13:00. Sýningin stendur til 4. maí 2009.
Anna Gunnarsdóttir lærði textílhönnun á Íslandi og Danmörk auk þess að hafa sótt fjölda námskeiða um textíl. Hún hefur síðari ár aðallega fengist við vinnslu á þæfðri ull og textíl. Hún blandar saman nytjavöru, myndlist og fatahönnun með þessum miðlum.
Verkin á sýningunni eru unnin út frá japanska spilinu mikado þar sem leikmenn spila með prik. Öll verkin á sýningunni tengjast á einn eða annan hátt við textíl. Þetta eru pappahólkar sem lokið hafa hlutverki sínu sem vafningshólkar fyrir textílefnin og fá nýtt hlutverk í leik sem listaverk á vegg. Þetta er leikur listamannsins með mikado.
Anna er annar eigandi gallerísins Svartfugls og Hvítspóa í miðbæ Akureyrar.
Hún hefur að baki fjölda sýninga víðs vegar um heim og hefur hlotið verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín. Anna var valin bæjarlistamaður Akureyrar árið 2008.
Bókasafn Háskólans á Akureyri er opið alla virka daga frá 8-18 og 12-15 á laugardögum.
Allir eru velkomnir
27.02.09
Félagsfundur Korpúlfsstöðum - þriðjudaginn 3. mars, kl: 20:00 - 21:00.
Korpunefnd kynnir vinnustofur og verkstæði
við kynnum fyrirhugaðar vinnustofur og verkstæði Textílfélagsins:
nú er SÍM að auglýsa lausar vinnustofur á Korpúlfsstöðum en Textílfélaginu hafa boðist mjög falleg rými fyrir starfsemina,
enn eru fáein pláss laus og nú er tækifæri til að koma og skoða og festa sér vinnustofu með aðgengi að stóru, björtu og vel búnu verkstæði...
tæki og tól eru vel þegin, bækur og blöð eru velkomin,
... komið og leggið okkur lið - takið þátt í mótun og uppbyggingu....
Hugmyndaflæði með púrtvínsívafi....
Nánari upplýsingar hjá Korpunefnd:
Þóra Björk thorab@atlantik.is
Kristveig: kristveig@islandia.is
Björg P.: bjorgpje@gmail.com
Sigríður Ólafs.: sigga.olafs@gmail.com
07.02.09
Myndir Þverskurður - frá sýningaropnuninni Gerðarsafni.
06.02.09
UMSÓKN UM VINNUSTOFU KORPÚLFSSTÖÐUM
Vinnustofur Textílfélagsins á Korpúlfsstöðum eru til leigu frá 1.mars n.k.
Sjá nánar myndir.
Umsóknareyðublað.
Umsóknum skal senda til stjórnar formadur@tex.is, fyrir 20.febrúar.
04.02.09
Þverskurður
Textílfélagið 35 ára - Gerðarsafni 7. febr. - 8. mars
Sýningaropnun kl. 16.oo laugardaginn 7.febr.
Leiðsögn um sýninguna alla sunnudaga kl. 15.00.

24.01.09
Norræn Textílverðlaun
Nordic Award in Textiles to Silja Puranen
The biggest textile prize in the Nordic countries, The Nordic Award in Textiles of 250 000 Swedish crowns, was awarded to Finnish textile artist Silja Puranen for her distinctive way of perceiving human vulnerability and inadequacy. Silja Puranen, 47 years, operates within the borderlands of textile and visual art. The award includes an exhibition in the Textile Museum of Borås opening in October this year.
Statement of the jury:
Through her power of observation in daily life situations, Silja Puranen asks crucial and unanswerable questions in her works. She processes her carefully chosen textile materials in combinations of old and new expressions and techniques which gives a distinctive "Puranenish" intimacy and unquestionable might to her artistic voice. Her artistry is affiliated with a human warmth that reaches out to us as we ponder over Life and death - why and where to?
website: http://www.stiftelsenfokus.nu/
15.01.09
Sýningaropnun
Anna Gunnarsdóttir bæjarlistamaður Akureyrar opnar sýninguna "Sjávarföll" föstudaginn 16. janúar kl. 17.oo í Dalí gallerí, Brekkugötu 9, Akureyri.
Verkin eru unnin út frá gamalli tækni sem notuð var við körfugerð hjáfrumbyggjum ameríku og einnig í Malasíu.Verkin eru vafin með þráðum í einskonar vöndul sem er síðan formaður í hring.Kraftur verkanna líkir eftir þeirri orku er myndast hringin í kringum landið við sjávarföll.
Anna hefur tekið þátt í fjölda sýninga hér heima og erlendis og fengið viðurkenningar fyrir verk sín.
01.09
Textillys 2009
Textílsýning í Borås sem opnar í júní 2009. Stefnt er að því að vera með seminar í tengslum við sýningaropnunina.
Sýningin er á vegum NTA - Nordic Textile Art en Textílfélagið er meðlimur.
Valnefndin fyrir sýninguna er skipuð Lisbeth Tolstrup DK, og Raiju Jokinen Finnlandi.
Stjórn Textílfélagsins tekur á móti umsóknum á CD diskum og áframsendir á sýningarnefnd. Umsóknarfrestur er til 5.jan. 09.
Sýning er opin textíllistamönnum af öllum norðurlöndunum.
20.11.08
Jólafundur
Jólafundur verður haldinn hjá Rósu, Skólavörðustíg 10
fimmtudaginn þann 4. desember kl.20.oo.
Skemmtilegt spjall !
rauðvín - ostar - glüwein - piparkökur
20.11.08
Tvö boðskort á sýningar Hrafnhildar Sigurðardóttur
Allt í plasti
laugardaginn 22.nóvember 2008 kl 15:00 í Frystinum sýningarsal Ness listamiðstöðvar að Fjörubraut 8 á Skagaströnd. Hrafnhildur Sigurðardóttir verkefnisstjóri listamiðstöðvarinnar sýnir það verk sín. Í boði eru léttar veitingar
Leikhlé – Time out
fimmtudaginn 27. nóvember 2008 kl. 17.00 í StartArt listamannahúsi Laugarvegi 12b eða skoða hana síðar. StartArt er opið þriðjudaga til laugardaga kl. 13.00 – 17.00
Sýningunni lýkur 7. janúar
17.11.09
STEFNUMÓT
Sigrún og Ólöf Einarsdætur sýna gler- og textílverk í andyri Salarins.
Sýningin stendur til 30.nóvember. www.salurinn.is
6.11.08
Félagsfundur
Félagsfundur verður haldinn á Korpúlfsstöðum
fimmtudaginn þann 13.nóvember kl.20.oo.
Dagskrá:
Íslenski Textílhópurinn:
Ólöf Einarsdóttir kynnir sýningar sem hópurinn hefur haldið á síðasta ári.
Verkstæði Textílfélagsins á Korpúlfsstöðum:
stjórn Textílfélagsins kynnir tilboð Sjónlistarmiðstöðvar um verkstæði og vinnuaðstöðu.
Kaffiveitingar
Sjáumst sem flestar !
8.10.08

Mjög áhugvert málþing um Halldóru Bjarnadóttur að tilefni 135 ára fæðingarafmælis hennar. Málþingið verður haldið í Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi 18. okt. n.k.
Ath. að skrá þáttöku fyrir 13. okt. sjá dagskrá
Sigrún Lára Shanko og Eggert feldskeri vinna saman.

Í dag verður útgáfu hóf, í London, fyrir bókina „Alex the Spy", höfundurinn
skrifar undir nafninu Tilman Gilson. Þetta er njósna saga og má segja að Alex, sem
er kvennnjósnari, sé spegilmynd af James Bond. Sjálfstæð, snjöll og afar vel klædd.
Af því tilefni var nokkrum „on the edge design“ hönnuðum boðið að taka þátt í sýningu á
verkum sínum og Eggert feldskeri er einn af þeim. Tveir af þeim loðfeldum sem
hann fer með utan eru með silki fóðri handmáluðu af Sigrúnu Láru Shanko silki listakonu.
Hófið fer fram í „The Imperial War Museum“.
26.09.08

Brynhildur Þórðardóttir opnar sýningu á morgun ásamt systur sinni Gunnhildi í Þjóðminjasafni kl.14. Sýndar eru prjónavörur og skúlptúra sem síðan verða til sölu í safnverslun Þjóðminjasafnsins.
24. 09.08

AFMÆLISSÝNING AÐALBJARGAR ERLENDSDÓTTUR
Aðalbjörg Erlendsdóttir, Budda, opnar sýningu þann 27. September milli
kl: 16:00 – 18:00 að tilefni af 50 ára afmæli sínu.
Sýningin verður á Kaffi Loka, Lokastíg 28, 101 Reykjavík.
Á sýningunni verða landsslagsmyndir málaðar á silki.

LEYFI NR: 814
Kristveig Halldórsdóttir opnar sýninguna - Leyfi nr: 814 - í vestursal á annari hæð, í START ART listamannahúsi, fimmtudaginn 25. september.
Í júlí mánuði árið 2006 fylgdi Kristveig daglangt hópi hreindýraveiðimanna um hlíðar fjalla í Geithellnadal, veiðisvæði 7 og ljósmyndaði atburði ferðarinnar.
Sýningin í START ART er sjötta einkasýning listakonunnar, sýningunni lýkur 29.okt.
23.09.08
Þorbjörg Þórðardóttir veflistakona hlýtur heiðursviðurkenningu á alþjóðlegum textílbiennal í Póllandi
Þorbjörg Þórðardóttir veflistakona hlaut nú á dögunum heiðursviðurkenningu fyrir frumlegt framlag hennar á alþjóðlega textíltvíæringnum 5th International Artistic Linen Cloth Biennale sem nú stendur yfir í Krosno, Póllandi. Þátttakendur á sýningunni eru alls 88 víðsvegar að úr heiminum.
Krosno er dæmigerð evrópsk miðaldaborg, þekkt fyrir vefnað og hörræktun, eins og nafnið gefur til kynna en Krosno þýðir einmitt vefstóll. Markmið sýningarinnar er að endurvekja hörinn til listsköpunar og það þykir því við hæfi að staðsetja biennalinn í Krosno þar sem hör hefur verið ræktaður og unninn í gegnum aldirnar.
Nánari upplýsingar um starfsferil Þorbjargar er að finna á www.thorbjorg.com
10.09.08

Íslenskt textilverk á farandsýningu í Kóreu
Textillistakonan Heidi Strand (www.heidistrand.com) á verkið Reindeer á
farandsýningunni European Art Quilt V sem kynnt var í Birmingham á Englandi
í ágúst. Á sýningunni er að finna 48 verk eftir jafnmarga evrópska listamenn
en hátt í 200 verk bárust alþjóðlegri fimm manna dómnefnd.
European Art Quilt V sýningin er nú komin til Suður-Kóreu og verður opnuð í
Chojun Textile & Quilt Art safninu í Seúl mánudaginn 15. september.
Sýningin verður í Kóreu þar til í lok október en fer svo til Hollands og að
því búnu til tveggja safna í Bandaríkjunum áður en hún verður sett upp í
virtum textilsöfnum í Danmörku og Þýskalandi.
Glæsileg sýningarskrá með vönduðum myndum af öllum verkunum og upplýsingum
um listamennina hefur verið gefin út á prenti og geisladisk og mun seljast í
tugþúsundum eintaka þessi tvö ár sem farandsýningin verður á ferðinni.
Nánari upplýsingar um European Art Quilt V er að finna á vefsetri EAQ,
http://www.europeanartquilt.com/ .
Prjónum til góðs á Menningarnótt.
Það styttist í Menningarnótt og eins og áður hefur komið fram að þá er prjón á dagskrá Menningarnætur í ár. Prjónarar eru hvattir til að prjóna til góðs í Hallargarðinum milli 14:00 og 17:00 á Menningarnótt. Fólk er hvatt til að koma með bleikt garn og fitja upp á einhverju til styrktar Krabbameinsfélaginu. Baukar verða á staðnum svo hægt er að heita á prjónaskapinn eða kaupa beint af prjónunum. Mætum með teppin, kaffibrúsana, prjónakörfurnar og gjafmildina í Hallargarðinn á Menningarnótt. Hér að neðan eru fleiri uppskriftir svo nú ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi en svo er um að gera að prjóna af fingrum fram eitthvað einstakt.
Kveðja Ilmur Dögg - www.prjona.net
Ásdís Birgisdóttir sýnir í Listmunahorninu.

Laugardaginn 16. ágúst var opnuð sýning á verkum Ásdísar Birgisdóttur í LISTMUNAHORNI Árbæjarsafns - inn af Krambúðinni.
Á sýningunni eru þrykkt verk úr silki. Leikið er með letur, blað “gull” og “blað”síður með vísan í forna handritamenningu. Félagskonur eru hvattir til að skoða sýninguna.
Sýningin er opin daglega frá kl. 10 – 17 og stendur til 31.ágúst.
28.05.08
Norræn Textílverðlaun 2008
Norræn Textílverðlaun frá stiftelsen Fokus í Borås Svíðþjóð voru úthlutuð í ár til Anne Damgaard, fatahönnuðs. sjá link á mynd.

19.05.08
Kristín, Ólöf og Kristín sýna í Gerðarsafni
Þrjár ólíkar sýningar sem mynda eina sterka heild
Það eru Kristín Geirsdóttir málari, Ólöf Einarsdóttir textíllistamaður og Kristín Garðarsdóttir leirlistamaður sem sýna verk sín. Listakonurnar þrjár hafa þekkst um árabil. Við fyrstu sýn vinna þær verk sín í ólíka miðla, en þó er ýmsa snertifleti að finna þegar betur er að gáð. Fegurð og snerting eru mikilvægur hluti af verkum þeirra þriggja og í handbragðinu kemur fram að allar þrjár eru í sterkum tengslum við gamlar hefðir en hafa engu að síður unnið úr straumum og stefnum í samtímanum, hver á sinn hátt.
Sýningarnar standa til sunnudagsins 8. júní
21.02.08
Hér á þessari síðu frá Kaunas Litháen, eru auglýst mjög áhugaverð námskeið í sumar. Meðal þess sem kennt verður er Jacquard vefnaður, silkiþrykk og verkstæði fyrir nútíma útsaum. Einnig er hægt að skoða ýmsar upplýsingar um sýninguna TEXTILE 07 - Kaunas Art Biennial sem stendur til 2. mars 2008.
(myndin er hlekkur)

14.02.08
FRÉTTATILKYNNING
Textillistakonan Heidi Strand sýnir nú verk sín á einkasýningu í ráðhúsinu í Høje-Taastrup í Kaupmannahöfn.
Í sumar barst Heidi boð um að sýna verk sín í sýningarsal ráðhússins í Høje-Taastrup, vestasta hluta Stór-Kaupmannahafnar. Sýningin var formlega opnuð fimmtudaginn 31. janúar og verður opin á sama tíma og ráðhúsið allan febrúarmánuð, það er alla virka daga til kl. 16 nema fimmtudaga til kl. 18. Ráðhúsið er rétt hjá Høje-Taastrup lestarstöðinni.
Heidi sýnir þar 33 veggverk, flest unnin á árunum 2004 til 2008, en einnig fáein eldri verk. Þema sýningarinnar er Ísland og íslensk náttúra, ís, líf og land.
Þetta er 20. einkasýning Heidi en hún hefur auk þess átt verk á alls um 25 samsýningum í Evrópu, Ameríku og Japan.
Nánari upplýsingar um listakonuna má fá á vefsetri hennar, www.heidistrand.com, og á vefsetri SÍM, umm.is.
Hér er kynning á sýningunni í Høje-Taastrup: sjá hér
13.02.08
Auður Vésteinsdóttir sendi inn frétt:
„12th International Triennial of Tapestry“, var haldinn 21. maí - til 31. október 2007, í „Sentral Museum of Textile“, í Lódz, Póllandi. Fulltrúar Íslands voru Auður Vésteinsdóttir og Ingibjörg Jónsdóttir.
Af 42 þjóðlöndum sem sendu inn þátttöku var valið úr frá 32 löndum alls 110 textíllistamenn,
auk þess voru 23 pólskir textíllistamenn valdir, samtals eru þá 133 þátttakendur í þessari sýningu.
Á sama tíma voru opnaðar 5 aðrar textílsýningar í Sentral Museum of Textile auk textílsýninga í 10 galleríum í þessari sögu miklu Textíl -borg.
www.muzeumwlokiennictwa.pl
Hér er sýningarskrá sýningarinnar, ath 272 bls, klikkið á myndina hún er hlekkur.

12.02.2008
Hér er hægt að sjá metnaðarfullt tímarit sem Textílfélagið í Noregi gefur út. Margar mjög áhugaverðar greinar ásamt upplýsingar um sýningar og fleira.
Klikkið á myndina hún er hlekkur.

11.02.2008


Íslensk Textíllist í Frakklandi
Íslenska Textílhópnum, sem samanstendur af textíllistamönnunum Gerði Guðmundsdóttur, Hrafnhildi Sigurðardóttur, Kristveigu Halldórsdóttur og Ólöfu Einarsdóttur, hefur verið boðið ásamt Önnu Gunnarsdóttur textíllistamanni, að halda sýningu í Wesserling Textíllistasafninu, Mulhouse, Frakklandi. Sýningin verður ein aðalsýning safnsins árið 2008 og stendur frá 26. janúar 2008 til 11. janúar 2009.
Textílhópurinn (The Icelandic Textile Group) var stofnaður árið 2004 vegna sýningar í St. Marie Aux Mines í Alsace, Frakklandi. Þar gafst hópnum kostur á að taka þátt í fjölsóttri alþjóðlegri sýningu, en 18.000 manns frá öllum heimsálfum sóttu sýninguna á þeim fjórum dögum sem hún stóð yfir.
Hópurinn komst m.a. í kynni við Bandaríkjamann sem hafði tengsl við sýningarsali í Wisconsin-fylki. Þar var hópnum boðið að sýna á þremur stöðum árið 2006, í The Art and Nature Center á Washington Island, í Unitarian Universalist Church West, Brookfield, og í International Folk Fair, Milwaukee. Sýningarnar vöktu athygli vestra og var aðsókn afar góð.
Meðlimir Textílhópsins eru allir starfandi listamenn sem hafa haldið einkasýningar hér heima og tekið þátt í fjölda samsýninga innanlands og erlendis.
Anna Gunnarsdóttir hefur tekið þátt í sýningum víðs vegar um heim, nú síðast í stærstu skúlptúr-sýningu í heimi ´´Sculpture by the Sea´´ í Sidney Ástralíu og ´´Sculpture inside´´ sem mun ferðast um Ástralíu.
Eins og áður er nefnt hefur hópnum og Önnu Gunnarsdóttur verið sýndur sá heiður að halda sýningu í einu helsta textíllistasafni Evrópu, Wesserling-safninu í Alsace, Frakklandi. Þetta mun verða stór sýning og fjölsótt, því talið er að um 35 þúsund gestir víðsvegar að sæki safnið á ári hverju. Í boðsbréfi frá forstöðumanni kemur fram að safnið vilji kynna sérstaklega íslenska nútímatextíllist árið 2008.
Patrice Dromsen Konsúll Íslands í Strassburg og Stefán Lárus Stefánsson sendiherra Íslands munu opna sýninguna.
Markmið Textílhópsins og Önnu Gunnarsdóttur með þessu samstarfi við Wesserling-safnið er sameiginlegt átak til kynningar á íslenskri nútímatextíllist á meginlandi Evrópu og munu hópurinn fara utan þann 14. febrúar nk. til að setja upp sýninguna og vera við opnun hennar.
29.11.2007
Anna Gunnarsdóttir segir frá sýningu:

Ljósmynd: Jack Bett
Sýningin heItir "Sulpture by the sea" og er haldin á Bondi og Tamarama ströndinn í Sidney Ástralíu og er stærsta úti skúlptúr sýning í heimi. Þetta er 11 árið sem hún er haldin og voru 106 sýnendur sem voru valdir til þáttöku og aðeins 46 erlendir listamenn voru valdir inn aðþessu sinni. Þetta er í fyrsta sinn sem þæfð ullarverk eru á sýningunni og vakti það mjög mikla athyggli. Verkin mín fengu frábæra dóma og fólk var hrifið að sjá þæfða ullarskúlptúra innan um verk úr kopar, granít og öðrum þungum efnum. Þar var um það bil 500.000 mans sem komu og skoðuðu sýninguna þessa daga sem hún stóð yfir og fékk hún mikla umfjöllun í öllum fjölmiðlum. Samhliða úti sýningunni var haldin sýningin "Sculpture inside" þar sem minni verk voru til sýnis, þar átti ég 3 verk sem voru í laginu eins og útiverkin nema hvað þau voru með silfur, gull og perlum. Inni verkin mín fara á aðra sýningu þarna úti sem verður haldin eftir áramótin þannig að þau eru ekkert á heimleið á næstunni.
Einnig var ég með námskeið í þæfingu á íslenskri ull fyrir 7-9 ára krakka og gekk það mjög vel var mikið spurt og skrafað um Ísland þannig að eflaust eigum við eftir að fá Ástralska ferðamenn í heimsókn seinna meir.

Víkurfréttir, 01. ágú. 2007 13:33
Sigrún Lára opnar sýningu í Salfisksetrinu
Rúnir í Silki er heiti á nýrri sýningu Sigrúnar Lára Shanko sem opnar þann 4. ágúst í Listasal Saltfisksetursins í Grindavík. Sigrún Lára hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir silki veggteppi sem hún byggir á fornsögum okkar.
Sigrún Lára Shanko sýnir hér, meðal annars, í fyrsta sinn Ragnars sögu loðbrókar og er hún sögð á fimm veggteppum. Ýmist er textinn tekinn úr Krákumálum eða Ragnars sögu loðbrókar. Menningararfurinn á hug hennar allan og hefur Sigrún Lára ekki bundið sig við veggteppin ein, heldur einnig látið rúnir og form flæða yfir silki kaftana auk þess að handlita silkifóður fyrir sérvalda pelsa hannaða af Eggert feldskera.
Sigrún Lára Shanko hefur verið að þróa litunaraðferð sína frá 1995 undir miklum sjálfsaga og útkoman er stór veggteppi í sterkum litum með tilvísun í menningararfinn umlukin rúnum sem auka á dulúð þeirra.
Sigrún Lára Shanko hefur tekið þátt í samsýningum víða erlendis en er þetta fyrsta skipti sem hún sýnir veggteppin hér á landi. Flest verka hennar hafa selst úr landi og er þau að finna í öllum heimsálfum að suður heimskautslandinu Antartíku frátöldu.

Gerjun í textíllist
Mynd: Morgunblaðið/Golli
Gerður að leggja lokahönd á uppsetningu sýningarinnar í Ráðhúsinu.
MORGUNBLAÐIÐ, Föstudaginn 28. júlí, 2006 - Myndlist Myndlist | Sýningin Ort í textíl opnuð í Ráðhúsinu í dag Gerjun í textíllist Eftir Jón Gunnar Ólafsson jongunnar@mbl. Eftir Jón Gunnar Ólafsson jongunnar@mbl.is "ÉG myndi orða þetta þannig að menningarstraumar frá meginlandinu og það sem er að gerast hér á Íslandi sameinist í þessum sal," segir Gerður Guðmundsdóttir textíllistakona um sýninguna Ort í textíl sem verður opnuð í Ráðhúsinu í dag og stendur til 15. ágúst. Á sýningunni eru verk eftir þrjár listakonur, þær Elsbeth Nusser-Lampe, Moniku Schiwy og Pascale Goldenberg, sem Gerður kynntist í Freiburg í Þýskalandi fyrir tveimur áratugum þegar hún var búsett þar. "Þá voru þær allar að byrja í myndlist. Í fyrra var ég í Frakklandi í eitt ár og tók þar þátt í nokkrum sýningum og komst að því að allir þekkja þær. Þær eru búnar að kynna sig ansi vel og eru mjög þekktar á meginlandinu. Mér fannst því kominn tími til að kynna fyrir Íslendingum hvað er að gerjast í textíllist í Suður-Þýskalandi og straumana á meginlandinu." Blóm, drasl og frímerki Gerður segir að listakonurnar séu nokkuð ólíkar. Nusser-Lampe leiti mikið til náttúrunnar og noti form sem finna má þar og urðu blómin fyrir valinu á þessari sýningu. "Svo er hún Pascale, hún er mjög skemmtileg. Hún safnar í poka því sem aðrir henda. Og býr svo til alveg stórkostleg verk úr því öllu saman. Hér er hún með einhverjar spýtur og drasl og maður horfir á þetta bara bergnuminn." Gerður segir svo að Schiwy sé örlítið jarðtengdari en hinar. Verk hennar séu samsett úr mörgum lögum og noti hún alls kyns hluti eins og t.d. frímerki. Allt mjög ólíkt Ásamt Gerði taka svo átta íslenskar listakonur einnig þátt í sýningunni. "Þetta eru mjög ólík verk. Þegar ég valdi konur til að sýna með þeim Nusser-Lampe, Schiwy og Goldenberg þá vildi ég fá konur sem eru mjög ólíkar. Við erum til dæmis hérna með skúlptúr sem er íslensk þúfa í þrívídd, með rótum og öllu og svífur um salinn. Hún er unnin á hefðbundin hátt með bandvefnaði. Svo er líka verk hérna úr glærri plastslöngu, en búið er að sjúga upp í hana vax. Þetta er alveg ótrúlegt," segir Gerður og tekur fram að hin verkin séu flest tvívíddarverk. "Það er þarna eitt hefðbundið bútasaumsteppi, hefðbundið að því leyti að það er unnið eftir gömlum hefðum en samsetningin er töluvert frumleg. Það er eins og fjórar árstíðir. Hér er allt unnið út frá einhverju þema. Ein vinnur með vatnið og ég er sjálf með laufblöð sem ég vinn á ull. Svo eru blóm og pappírsverk. Þetta er allt mjög ólíkt." Íslensku listakonurnar sem taka þátt í sýningunni eru auk Gerðar þær Anna Gunnarsdóttir, Ásdís Loftsdóttir, Hrafnhildur Sigurðardóttir, Jóna Imsland, Kristín Bragadóttir, María Valsdóttir, Ólöf Einarsdóttir og Rósa Kristín Júlíusdóttir. Samhliða sýningunni í Ráðhúsinu efna þær Nusser-Lampe, Goldenberg og Gerður til sýningarinnar Kímonóar í kaffistofunni í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar og stendur hún einnig til 15. ágúst.

Laugardaginn 8. júlí, 2006 - Myndlist
MYNDLIST - Listasafn Reykjanesbæjar
Fjölbreytni daglegrar tilveru
Distill
alþjóðleg samsýning sjö listamanna
"Það sem er skemmtilegt við sýningu Distillhópsins er sú afslappaða afstaða sem listamennirnir hafa gagnvart efnivið sínum."
Listhópurinn Distill samanstendur af sjö listamönnum sem eiga það sameiginlegt að hafa stundað nám í Colorado í Bandaríkjunum. Þeir hafa viðhaldið tengslunum með sýningum en hópurinn sýndi m.a. í Hafnarborg árið 2002. Þegar sýningin er skoðuð er augljóst að listamennirnir ná vel saman en þeir eru á nokkuð svipaðri línu í afstöðu sinni til listarinnar. Þeir eiga það nær allir sameiginlegt að nota hversdagslegan efnivið í listaverk sín en ná þó að skapa annan heim en þann sem upprunalega efnið felur í sér.
Vegginnsetning Patricia Tinajero-Baker úr borðfótum, stikum og hekluðum bútum er afar skemmtileg sjónrænt séð þó merking hennar sé langt í frá auðsæ. Kringlóttar "dúllur" sem flæða niður eftir vegg og út á gólf og eru m.a. heklaðar úr myndbandsspólum er sömuleiðis sjónrænt áhugavert verk sem nýtur sín alveg án þess að reynt sé að gefa því of sterka og afmarkaða merkingu. Í list sinni leitar listamaðurinn Jaeha Yoo til myrkari hliða bernskunnar, en hann notar tuskudýr í skúlptúra sína. Rýmin sem hann skapar gefa til kynna margfeldi og endurtekningu sem í sjálfu sér er næstum ógnvekjandi. Amy Barillaro sýnir veggmyndir unnar úr sogrörum, hún skapar mynstur í naumhyggjustíl. Julie Poitras Santos vinnur með hugmyndir um flækjur, völundarhús og endurtekningu og myndverk hennar má tengja flóknum samgönguæðum samtímans. Tsehai Johnson sýnir veggverk úr postulíni, kynleg form sem minna jafnt á líkama og húsgögn, áleitin verk með innri spennu sem skapast af samblandi af fegurð og sérkennilegri líkamstilfinningu. Klippimyndir Ann Chuchvara koma á óvart í einfaldri fegurð, afar fínleg form skapa samspil ljóss og skugga. Hér er óþarfi að leita að dýpri merkingu, fagurfræðileg gildi skapa merkingu á eigin forsendum og það má líta á þessi verk sem eins konar náttúrutúlkun.
Þá eru ónefnd listaverk eina íslenska listamannsins í hópnum, Hrafnhildar Sigurðardóttur, sem hlaut Norrænu textílverðlaunin á síðasta ári. Það er kímni og fínleiki í verki hennar Nornabrjóst og plastræmur af dagblaðapökkum gefa í skyn flug tímans.
Það sem er skemmtilegt við sýningu Distill-hópsins er sú afslappaða afstaða sem listamennirnir hafa gagnvart efnivið sínum. Án þess að setja sig í stellingar eða flækja málin skapa þeir listaverk úr hversdagslegum efnum og sömuleiðis velkjast básaskiptingar á borð við leirlist, textíl eða samtímalist ekki fyrir þeim, þeir skapa einfaldlega sína list af hreinskilni og einlægni. Sá léttleiki sem hversdagleiki efniviðarins gæðir verk þeirra kemur sýningunni mjög til góða og auðveldar aðgengi áhorfenda að verkunum, sama á hvaða forsendum það er, til að fá skemmtilegar föndurhugmyndir eða velta fyrir sér eðli tímans.
Þessi skemmtilegi léttleiki nær því miður ekki alveg til textans í bæklingnum með sýningunni. Þar er falleg hugsunin um ljóð Jorge Luis Borges en heldur langsóttari eru tilvísanir í fyrirbærafræði Maurice Merlau-Ponty. Sýningin er mun skemmtilegri en þessi texti gefur til kynna og óhætt að mæla með heimsókn á hana í sumar.
Ragna Sigurðardóttir
Norrænu textílverðlaunin 2005
Leitar í hefðina til að deila á hefðina
Hrafnhildur Sigurðardóttir textíllistakona hlaut Norrænu textílverðlaunin 2005. Ásgeir Ingvarsson ræddi við hana um verðlaunin, boðskap listarinnar og atvinnulistamanninn sem ætlaði að segja starfi sínu lausu.
Í LISTASAFNI Árnesinga var á dögunum opnuð sýning á verkum textíllistakonunnar Hrafnhildar Sigurðardóttur. Hrafnhildur hlaut árið 2005 Norrænu textílverðlaunin, fyrst Íslendinga og varð fimmti listamaðurinn til að hreppa verðlaunin frá því þau voru fyrst veitt árið 2000.
Sýning Hrafnhildar í Listasafni Árnesinga ber yfirskriftina Hér. "Að grunni til eru á sýningunni sömu verk og á verðlaunasýningunni sem haldin var í Borås í Svíþjóð á síðasta ári, en ég hef bætt við mörgum nýjum verkum sem ég hef unnið síðan þá, og held áfram að vinna með sama þema."
Þemanu sem Hrafnhildur hefur gert að sínu verður kannski best lýst með umsögn dómnefndar Norrænu textílverðlaunanna: Kynjað viðhorf með konuna í forgrunni, túlkað í tilraunum með mismunandi tækni og efni.
Handverkshefð og húmanismi
Það er broddur í verkum Hrafnhildar, og margþætt gagnrýni á samfélagið: "Ég sæki í íslenska handverkshefð og nota hana til að skapa nútímaleg myndverk. Það má segja að ég leiti í hefðina til að deila á hefðina," segir Hrafnhildur glettin. "Ég var á tímabili mjög upptekin af feminískum pælingum og gagnrýndi þær staðalmyndir af konum sem eru á hverju strái. En ég deili líka á stríð, á alla misnotkun minnihlutahópa. Einn listunnandi sagði mig ekki femínista, heldur húmanista, og ég held að sé mikið til í því, en ég er kona og kannski ekki skrítið að ég deili á samfélagið frá sjónarhóli kvenmanns."
Sem dæmi um þær aðferðir sem Hrafnhildur beitir má nefna verkið "Varastækkun"/"Lip Infusion". Verkið er gert úr þunnum plastslöngum sem Hrafnhildur hefur fyllt af varalit: "Nú geturðu keypt varalit í Bandaríkjunum sem inniheldur bótox, svo þegar þú berð litinn á varirnar bólgna þær upp og verða ofsalega sexy," segir Hrafnhildur. "Þetta er auðvitað baneitrað: má bjóða þér að setja á þig varalit og bólgna allur upp?"
Dýrt listform
Hrafnhildur menntaði sig við textíldeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk mastersnámi í skúlptúr við Coloradoháskóla. Verkin hennar eru því iðulega á mörkum þessara tveggja listforma: "Ég er ekki hreinræktuð textíllistakona, og í Ameríku myndi ég aldrei vera flokkuð sem slík, heldur vera kölluð "mixed-media artist" sem vinnur í mjúka skúlptúra."
Hrafnhildur hefur unnið við listir í hálfan annan áratug og segir ekki mikið á því að græða: "Þetta er dýrt listform að vinna með, verðlaunaféð sem fylgir Norrænu textílverðlaununum fer að mestu leyti í hráefniskostnað. Þeir spurðu mig í Svíþjóð hvað ég ætlaði að gera við peninginn, og ég svaraði eins og ameríski bóndinn sem vann í Lottóinu: "I'll keep on farming till it's all gone"."
Datt ég á hausinn?
Hrafnhildur segist hafa verið alveg við að gefast upp á listamannsstarfinu þegar hún hreppti verðlaunin: "Það leið varla sá dagur að ég velti ekki fyrir mér hvort ég hefði dottið á hausinn, þegar ég ákvað að verða listamaður. Ég hef mörgum sinnum ætlað að pakka saman og segja þetta gott, eftir að hafa unnið næstum kauplaust í fimmtán ár við að skapa myndverk," segir Hrafnhildur. "Ég gantast stundum þegar fólk spyr við hvað ég vinn, og segist skapa menningarverðmæti í sjálfboðavinnu. Fólk verður voða hissa og spyr hvernig ég geri það: "Jú, ég er myndlistarkona"."
Ætlaði að segja upp
Hrafnhildur hafði ákveðið að segja skilið við listina, en ekki fyrr en hún hefði þaulreynt allar leiðir. Það var þessi þrautseigja sem varð til þess að hún náði athygli Norrænu textílverðlaunanna: "Haustið 2004 gerði ég upp hug minn um að hætta þessu, en ég gat ekki hætt nema fullreynt alla möguleika til hins ýtrasta. Þetta er eins og með íþróttafólkið, sem ekki getur hætt fyrr en það er komið á toppinn. Ég byrja að senda út bréf, og athuga hvort ég geti fengið að sýna, og hvort eitthvað seljist. Ég ætlaði að herma eftir bönkunum og vera með smá útrás," segir Hrafnhildur með hlátrasköllum.
"Ég sá tilkynningu um að einhver Finni hefði hreppt Norrænu textílverðlaunin og fannst það forvitnilegt. Ég hafði ekki heyrt um þessi verðlaun fyrr, enda nýbreytni í textílheiminum, og sendi verðlaunanefndinni bréf. Þeir voru ósköp fegnir að heyra í mér því þeir höfðu lengi verið að reyna að komast í samband við íslenska textíllistamenn og langaði að koma hingað og skoða."
Klapp á bakið
Hrafnhildur kemur verðlaunanefndinni í samband við Íslenska textílfélagið og fljótlega kemur sendinefnd hingað til lands og skoðar verk íslenskra textíllistamanna, Hrafnhildar þeirra á meðal: "Þegar mér er tilkynnt að ég hljóti verðlaunin hætti ég við að hætta. Ég var farin að liggja yfir atvinnuauglýsingunum þegar hér var komið sögu og ætlaði að segja upp lélegu starfi listamannsins með hátíðlegum hætti, kannski með opnu bréfi í Morgunblaðið," segir Hrafnhildur með og hlær, en er þó fúlasta alvara. "Auðvitað hafa verðlaunin fjárhagsleg áhrif, en umfram allt er þetta eitthvert það stærsta klapp á bakið sem ég hef fengið. Það er gerist fátt á Íslandi sem hvetur mann áfram. - Jú, þeir hæla manni, listfræðingarnir, þegar maður heldur sýningar. Ég klippi út krítíkina í Morgunblaðinu og á slæmum dögum les ég hana aftur og líður aðeins betur næsta dag. Ekki að ég hafi verið að bugast undan einhverri minnimáttarkennd, en maður hugsar oft með sér, hvort maður er á réttri leið."
Og Hrafnhildur segir verðlaunin óneitanlega hafa haft gott kynningargildi: "Það gerðist lítið fyrstu vikurnar, en eftir nokkra mánuði fóru boðsbréfin að berast, svo verðlaunin hafa greinilega áhrif. Kannski ég pakki ekki saman í þessari viku, - slái því aðeins á frest," segir Hrafnhildur Sigurðardóttir og hlær.

asgeiri@mbl.is |